Forsíðugreinar

Náttúruleg þyngdarstjórnun

Hvernig virkar LipoSan?

LipoSan frá Primex eru náttúrulegar trefjar sem binda fitu úr fæðunni og draga úr upptöku fitu í meltingarveginum. LipoSan hjálpar til við þyngdarstjórnun og bætir meltinguna ásamt því að hafa jákvæð áhrif á kólesterólmagn í blóði. 

LipoSan er tilvalið fyrir þá sem eru á lágkolvetna- og Ketó mataræði. Náttúrulegar trefjar og c-vítamín bæta meltinguna og gefa aukna orku.

Til að auka virkni LipoSan hefur C-vítamíni verið bætt í hylkin. Þessi viðbót hefur tvíþætt áhrif, annars vegar eykur það fitubindingareiginleika LipoSan auk þess að styrkja ónæmiskerfið og almenna heilsu.

Yfirlit yfir LipoSan neytendavörur

Bætt þarmaflóra og aukið þol - Nýjar rannsóknir

Nýjar rannsóknir sýna fram á að kítósan hefur jákvæð áhrif á þarmaflóru og stuðli að bættri meltingu. Með þessum nýuppgvötvuðu prebiotic eiginleikum getur LipoSan bætt meltinguna, stutt við heilbrigða þarmaflóru og gefið líkamanum meiri orku úr máltíðinni. Nýlegar rannsóknir hafa einnig sýnt fram á áður óþekkta eiginleika kítósans, m.a. að vinna gegn öldrun og auka þol. Unnið er að frekari rannsóknum og úrvinnslu úr þessum niðurstöðum í samvinnu við færustu vísindamenn heims á því sviði.

BIndur fitu úr máltíðinni

LipoSan er náttúrulegt kítósan sem leysist upp í magasýru og bindur fitu úr máltíðinni. Þannig dregur LipoSan Ultra verulega úr hitaeiningum í máltíðinni og getur stuðlað að þyngdartapi, auk þess að styðja við og bæta meltingu líkt og aðrar trefjar. Til að LipoSan Ultra virki sem best er ráðlagt að taka það inn fyrir eða með máltíð. BellyLipoSan þarf einungis um 3-5 mínútur til að ná fullri virkni í maganum og hvert gramm af LipoSan getur bundið vel yfir 100 grömm af fitu. Sé engin fita í máltíðinni virkar LipoSan á svipaðan hátt og almennar trefjar til stuðnings meltingar og þarmaflóru. 

Klínísk rannsókn sýndi fram á þyngdartap í kjölfar notkunar á LipoSan. Hópur einstaklinga sem tóku 3 grömm á dag í 8 vikur léttist í samanburði við hóp sem tók lyfleysu.

Viðheldur eðlilegu kólesteróli

Með því að minnka meltanlega fitu, binda kólesteról og gall stuðlar LipoSan að viðhaldi eðlilegs kólesterólmagns í blóðinu. Til að framleiða gall notar líkaminn uppsafnað kólesteról úr líkamanum, en líkaminn endurnýtir meirihlutann af því galli sem hann notar í meltingarveginum. LipoSan dregur úr upptöku galls í meltingarveginum og lækkar þannig verulega það magn kólesteróls sem er í æðakerfinu. Regluleg inntaka á LipoSan Ultra getur dregið úr LDL kólesteróli í blóðinu. Samkvæmt EFSA (Matvælastofnun Evrópu) stuðlar kítósan að viðhaldi eðlilegs kólesterólmagns í blóðinu ef tekin eru 3g á dag.

Hvað með góða fitu í máltíðinni?

LipoSan bindur meira af óhollari olíum og fitum en af hollum olíum úr venjulegri máltíð. Samkvæmt nýlegum rannsóknum hefur kítósan þó ekki áhrif á upptöku eða nýtingu á fituleysanlegum vítamínum (A, D, E og K) né andoxunarefnum úr fæðunni. Ef Lýsi eða aðrar hollar olíur eru teknar að staðaldri er ráðlagt að taka þær á öðrum tíma dags til að tryggja fulla virkni þeirra. 

Nánari upplýsingar um virkni og reynslu af notkun LipoSan


Viðburðir

Engin grein fannst.


Fréttir

PRIMEX AMONG STONGEST COMPANIES IN ICELAND

Primex ehf. ranked 7th largest company in its sector for the year 2022

Lesa meira

Primex at Expo West 2023

Primex will be exhibiting under the ChitoCare Beauty brand at the Natural Products Expo in Anaheim, California, on March 8-10, 2023.

Lesa meira

Primex at Vitafoods Europe 2022

Primex will be exhibiting at Vitafoods Europe, the global European nutraceutical event, in Geneva, Switzerland, from May 10-12, 2022.

Lesa meira

Fleiri fréttir